Aðalfundur Freyjukórsins 2026

Aðlafundur Freyjukórsins verður haldinn 21.maí á Hótel Vesturlandi
kl: 18:00 – súpa, salat og brauð í boði kórsins.
Dagskrá fundarins
1. Fundarsetning
2. Skipun fundarstjóra og fundarritara
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar
4. Gjaldkeri flytur og skýrir endurskoðaða reikninga síðasta árs
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og reikninga
6. Kosning í stjórn og varastjórn
7. Kosning í þær lausanefndir sem talin er þörf á hverju sinni
8. Skipun tveggja endurskoðenda
9. Ákvörðun þátttökugjalds
10. Umræður um löglega framkomnar lagabreytingatillögur sbr. 12 gr.
11. Atkvæðagreiðsla um lagabreytingar
12. Önnur mál
13. Fundi slitið

Tillaga að lagabreytingu á 17.grein laga Freyjukórsins.

Lagt fram á aðalfundi á Hótel Vesturlandi 21.maí 2026

Greinin hljóðar svo:

17. gr. Búninga- og uppstillinganefnd Búninganefnd er skipuð þremur konum. Hennar hlutverk er að finna búninga og leita tilboða í verð. Búninganefnd ákveður hvernig kórkonur skuli vera klæddar á uppákomum kórsins hverju sinni og sér um uppröðun, innkomur og útgöngu kórsins á tónleikum í samstarfi við kórstjóra.

Breytingatillaga:

17.gr. Búninga og uppstillinganefnd,

„Búninganefnd; Stjórn leggur fyrir haustfund ár hvert hvort skipuð sé búninganefnd, að öðrum kosti ákveður stjórn búninga kórsins hverju sinni. Búninganefnd er skipuð 3 konum. Hennar hlutverk er að finna búninga og leita tilboða í verð ef þörf er talin á nýjum búningum.

Uppröðunarnefnd; Skipuleggur uppröðun, inngöngu og útgöngu kórsins eftir aðstæðum hverju sinni í samráði við kórstjóra. Hún skal skipuð 2 konum.

Greinargerð

Aðalfundur 2025 ákvað að hvíla búninga og uppstillinganefnd þar sem sá hluti starfsins olli óróa meðal kórkvenna. Á starfsári 2025-2026 tók stjórn að sér að sjá um ákvarðanir um búninga og hefur það gengið vel enda er kórinn vel búinn með svarta síðkjóla og bláa sumarlegri kjóla auk safns af fylgihlutum. Þegar til þess kemur að endurnýja þurfi búninga getur haustfundur ákveðið að skipa í búninganefnd. Uppröðun og inn og útganga getur verið eftir þeim aðstæðum sem tónleikar eru haldnir og ef þörf er á er hægt að fela 2 konum að skipuleggja þessi atriði á síðustu æfingu fyrir tónleika.